GLæra fyrir AI aðstoðarmenn
Tengdu GLæru við Claude, ChatGPT, Gemini eða annan samhæfan aðstoðarmann og búðu til breytanleg drög að kynningum, könnunum og leikjum úr samtali. Drögin opnast í ritli GLæru, tilbúin til að laga.
Claude er vörumerki Anthropic, ChatGPT vörumerki OpenAI og Gemini vörumerki Google. GLæra er hvorki í samstarfi við þau né styrkt af þeim.
Gerir
- Leitað í kynningum, könnunum, leikjum og stærðfræðisyrpum sem þú átt.
- Lesið drög sem þú átt, með glærum eða spurningum.
- Lesið stærðfræðisyrpur sem þú átt, með svörum og lausnarleiðum. Þeim er ekki breytt.
- Búið til ný drög að kynningu eða könnun.
- Búið til nýjan leik, með eða án spurninga.
- Bætt við glærum eða umferðum í drög sem þú átt, eða skipt þeim út.
Gerir ekki
- Engin þátttakendasvör og engar niðurstöður.
- Engin birting og engar beinar lotur.
- Ekkert er sent á þátttakendur.
- Engu er eytt og engu er deilt — glærum er aldrei fækkað.
Svona tengir þú
Bættu GLæru við sem sérsniðinni tengingu (custom connector) í aðstoðarmanninum þínum og límdu þessa slóð:
https://glaera.com/api/mcp
Þú skráir þig inn með GLæru reikningnum þínum og staðfestir aðganginn. Eftir það getur þú beðið aðstoðarmanninn um að leita í efninu þínu eða búa til ný drög.
Sérsniðnar tengingar eru ekki í boði í öllum áskriftarleiðum Claude og ChatGPT.
Í Gemini er tengingunni bætt við á gemini.google.com undir Settings → Connected Apps → Custom. Google segir sérsniðnar tengingar þar aðeins í boði á ensku og með persónulegum Google-reikningi, ekki skóla- eða vinnureikningi. Gemini getur verið nokkrar mínútur að svara þegar það les úr GLæru.
Engin aukakeyrsla á gervigreind
Aðstoðarmaðurinn skrifar efnið og GLæra vistar það eins og það kemur. GLæra keyrir ekki aðra gervigreind ofan á það, svo tengingin bætir engum gervigreindarkostnaði við áskriftina þína.
Þú stjórnar aðganginum
Tengingin nær aðeins til þíns eigin efnis og þú getur aftengt hana hvenær sem er. Um leið og þú aftengir hættir aðstoðarmaðurinn að ná sambandi.
Skoða tengingar í stillingum